Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fös 24. júní 2022 12:13
Elvar Geir Magnússon
Teitur Örlygs: Gullaldarár KR eru búin
Mynd: Njarðvík
Það er mikil gleði í Njarðvík en liðið trónir á toppi 2. deildar karla og rúllaði yfir toppslaginn gegn Ægi 6-0 í vikunni.

Á sunnudagskvöld er komið að því að taka á móti KR í 16-liða úrslitum Mjólkurbikarsins og spennan í bæjarfélaginu fer hratt vaxandi.

Til að hita fólk enn betur upp fyrir leikinn hafa Njarðvíkingar gert skemmtilegt myndband á léttu nótunum en það má sjá hér að neðan. Þar má sjá ýmis þekkt andlit.

Njarðvík vann granna sína í Keflavík 4-1 á útivelli í 16-liða úrslitum og spurning hvort bikarævintýrið haldi áfram hjá þeim grænu.

Leikur Njarðvíkur og KR verður klukkan 19:45 á sunnudagskvöld og miðasala á appinu Stubbur er farin af stað.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner