Hemmi Hreiðars: Við vakúmpökkuðum þá


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Hermann Hreiðarsson þjálfari ÍBV var ansi svekktur með 3-0 tap sinna manna gegn Val á heimavelli í dag. Eins og oft áður sýndi liðið fína takta en tókst ekki að setja mark sitt á leikinn.
„Þetta málar engan vegin rétta mynd af leiknum. Þeir komast í eina sókn í fyrri hálfleik, við eigum hornspyrnur og komumst í fín færi. Ég get ekki kvartað yfir því sem menn gáfu í þetta, við unnum slagina, við í rauninni vakúmpökkuðu þá," sagði Hemmi.
Liðið fékk á sig tvö mörk með stuttu millibili í seinni hálfleik sem gerði þeim erfitt fyrir.
„Þá er það erfitt. Við spiluðum líka vel í seinni hálfleik, spiluðum úr pressu trekk í trekk og við fáum færi. Ég man ekki eftir því að Guy hafi þurft að verja skot í þessum leik. Það eru ofboðsleg gæði í þessu liði og þeir þurftu fá færi," sagði Hemmi.
Liðið fékk svo sannarlega tækifæri að gera eitthvað úr hornspyrnum í dag.
„Þetta eru frábærar hornspyrnur, það þarf bara að vera nógu frekur og skalla helvítis boltann og klára þetta," sagði Hemmi.





