Patrick Pedersen (Valur)
Patrick Pedersen skoraði fimmta mark Vals í 6-1 burstinu gegn KR í 12. umferð Bestu deildarinnar í gær. Rétt á undan var hann hinsvegar á leið af velli.
Þórður Þorsteinn Þórðarson fjórði dómari vildi þó ekki gefa leyfi fyrir skiptingunni strax, við litla ánægju hjá þjálfarateymi Vals. Pedersen tók svo á mikinn sprett beint á eftir og náði að skora áður en leyfi var gefið á að framkvæma skiptinguna.
'Vi har Pedersen!' sungu svo stuðningsmenn Vals þegar Patrick fór af velli eftir frábæran vinnudag. Hann vann vel fyrir liðið og átti tvær stoðsendingar auk marksins. Danski sóknarmaðurinn er Sterkasti leikmaður umferðarinnar, í boði Steypustöðvarinnar.

Lestu um leikinn: Valur 6 - 1 KR
Þremur mörkum frá meti Tryggva
Patrick er markahæstur í Bestu deildinni með 12 mörk. Í efstu deild eru mörk hans orðin alls 127 talsins. Hann á aðeins fjögur mörk í markamet Tryggva Guðmundssonar (131 mark í efstu deild).
„Það myndi skipta mig miklu máli að ná þessu meti. Þetta er stórt met að eiga. Vonandi næ ég því áður en tímabilinu lýkur. Ég setti það sem mitt persónulega markmið fyrir tímabilið að ná þessu meti, vonandi rætist það. Aðal einbeiting mín fer hins vegar á að hjálpa liðinu að vinna eins marga leiki og mögulegt er og vonandi keppa um Íslandsmeistaratitilinn," sagði Patrick í viðtali við Sýn nýlega.
Hér má sjá mörkin úr leiknum í gær:
Leikmenn umferðarinnar:
11. umferð - Guðmundur Baldvin Nökkvason (Stjarnan)
10. umferð - Viktor Örn Margeirsson (Breiðablik)
9. umferð - Alex Þór Hauksson (Stjarnan)
8. umferð - Jakob Byström (Fram)
7. umferð - Kjartan Kári Halldórsson (FH)
6. umferð - Morten Ohlsen Hansen (Vestri)
5. umferð - Hrannar Snær Magnússon (Afturelding)
4. umferð - Bjarki Björn Gunnarsson (ÍBV)
3. umferð - Jónatan Ingi Jónsson (Valur)
2. umferð - Guðmundur Magnússon (Fram)
1. umferð - Rúnar Már Sigurjónsson (ÍA)
Besta-deild karla
Lið | L | U | J | T | Mörk | mun | Stig |
---|---|---|---|---|---|---|---|
1. Víkingur R. | 12 | 8 | 2 | 2 | 24 - 13 | +11 | 26 |
2. Breiðablik | 12 | 7 | 2 | 3 | 20 - 17 | +3 | 23 |
3. Valur | 12 | 6 | 3 | 3 | 30 - 17 | +13 | 21 |
4. Stjarnan | 12 | 6 | 2 | 4 | 23 - 20 | +3 | 20 |
5. Vestri | 12 | 6 | 1 | 5 | 13 - 9 | +4 | 19 |
6. Afturelding | 12 | 5 | 2 | 5 | 14 - 15 | -1 | 17 |
7. Fram | 12 | 5 | 1 | 6 | 19 - 18 | +1 | 16 |
8. FH | 12 | 4 | 2 | 6 | 17 - 16 | +1 | 14 |
9. ÍBV | 12 | 4 | 2 | 6 | 13 - 19 | -6 | 14 |
10. KR | 12 | 3 | 4 | 5 | 31 - 32 | -1 | 13 |
11. KA | 12 | 3 | 3 | 6 | 10 - 20 | -10 | 12 |
12. ÍA | 12 | 3 | 0 | 9 | 13 - 31 | -18 | 9 |
Athugasemdir