Arsenal með í kapphlaupinu um Ekitike - Mikill áhugi á McAtee - Man Utd tilbúið að selja Malacia
   fös 24. júlí 2020 18:00
Elvar Geir Magnússon
Douglas Costa tæpur fyrir leikinn gegn Lyon
Juventus hefur staðfest að Douglas Costa verði frá í að minnsta kosti tvær vikur vegna meiðsla í læri.

Brasilíumaðurinn kom af bekknum í 2-1 tapi gegn Udinese í gærkvöldi.

Hann fór í skoðun í morgun og þar kom í ljós að hann verður frá næstu vikurnar.

Douglas Costa spilar því ekki meira á tímabilinu í ítölsku A-deildinni og er tæpur fyrir seinni leikinn við Lyon í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar en sá leikur verður í ágúst.

Lyon vann fyrri leikinn á heimavelli sínum 1-0.
Athugasemdir
banner
banner
banner