Fjórtánda umferð Bestu deildar karla hefst í dag með þremur leikjum. Tveir leikir á morgun en viðureign Stjörnunnar og Víkings ekki fyrr en á laugardaginn næsta.
Leifur Andri Leifsson fyrirliði HK sem situr á toppnum í Lengjudeildinni spáir í umferðina.
Leiknir 2-2 ÍBV (14 í dag)
6 stiga leikur, bæði lið mæta vel gíruð. Við munum sjá mörk og rauð spjöld hérna, annað væri vonbrigði.
Keflavík 2-1 KA (17 í dag)
Bæði lið búin að vera að spila vel að undanförnu. Keflvíkingar eru mjög sterkir heima, Adam Páls leggur upp tvö þó honum finnist mjög leiðinlegt að gefa boltann.
FH 2-1 Breiðablik (19:15 í kvöld)
Álagið hlýtur að fara að segja til sín hjá Blikum. Þetta verður svipuð dramatík og í fyrra í Krikanum. Matti Vill skorar með skalla á 90 mín, 2-1.
KR 0-1 Valur (19:15 á morgun)
Valsarar hljóta að fara að hrökkva í gírinn. Hólmar getur ekki átt tvo hauskúpu leiki í röð.
ÍA 1-2 Fram (19:15 á morgun)
Framarar hafa verið flottir í sumar og klára þennan leik.
Stjarnan 2-4 Víkingur (Lau 30. júl kl 14)
Verður svipað uppá teningnum og í fyrri leiknum nema Víkingar klára þennan leik.
L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |