Watkins orðaður við United - Bayern sýnir Díaz áhuga - Arsenal hefur rætt við Eze
   fim 24. september 2020 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Bonatini fer frítt frá Wolves (Staðfest)
Brasilíski sóknarmaðurinn Léo Bonatini hefur yfirgefið Wolves til að ganga í raðir Grasshopper í Sviss.

Bonatini er 26 ára og átti stóran þátt í sigri Wolves á Championship titlinum 2018 þar sem hann skoraði tólf mörk í 43 leikjum. Hann spilaði aðeins sjö leiki í úrvalsdeildinni og var í kjölfarið lánaður til Nottingham Forest og Vitoria Guimaraes í Portúgal.

Bonatini átti erfitt uppdráttar á láni og telur Nuno Espirito Santo sig ekki hafa not fyrir sóknarmanninn. Hann á tvö ár eftir af samningi sínum og hefur því verið sendur á tveggja ára lánssamningi til Sviss.

Hjá Grasshopper hittir hann Connor Ronan, Tote Gomes og Renat Dadashov sem eru allir hjá svissneska félaginu að láni frá Wolves.

Sky Sun, fyrrum meðlimur í stjórn Úlfanna, er forseti Grasshopper.
Athugasemdir
banner
banner