Robinson, Tonali og Iraola orðaðir við Man Utd - White á förum frá Arsenal? - Rudiger og Kolo Muani til Juve?
   fim 24. september 2020 09:19
Magnús Már Einarsson
Edouard Mendy til Chelsea (Staðfest)
Mynd: Chelsea
Chelsea hefur keypt markvörðinn Edouard Mendy í sínar raðir frá franska félaginu Rennes.

Kaupverðið hljóðar upp á 22 milljónir punda en Mendy skrifaði undir fimm ára samning.

Kepa Arrizabalaga, markvörður Chelsea, hefur verið mikið gagnrýndur fyrir frammistöðu sína og Mendy gæti tekið við af honum sem aðalmarkvörður.

Mendy fæddist í Frakklandi en hann er landsliðsmarkvörður Senegal og átta landsleiki að baki.

Á síðasta tímabili hjálpaði hann Rennes að landa Meistaradeildarsæti í fyrsta skipti.

Mendy er ekki fyrsti markvörðurinn sem Chelsea fær frá Rennes því Petr Cech fór sömu leið árið 2004.



Slapp
Athugasemdir
banner
banner