Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 24. september 2021 22:30
Brynjar Ingi Erluson
Messi ekki með um helgina - „Vonandi klár fyrir leikinn gegn Man City"
Lionel Messi
Lionel Messi
Mynd: Getty Images
Argentínski snillingurinn Lionel Messi verður ekki með Paris Saint-Germain gegn Montpellier um helgina vegna meiðsla en hann gæti þó náð leiknum gegn Manchester City í Meistaradeildinni.

Messi fór meiddur af velli í 2-1 sigrinum á Lyon fyrir fimm dögum og missti svo af leiknum gegn Metz.

Hann verður ekki í leikmannahópnum gegn Montpellier um helgina en gæti þó verið klár í slaginn þegar PSG mætir Manchester City í riðlakeppni Meistaradeildarinnar á þriðjudag.

„Messi byrjaði að hlaupa í dag. Við munum skoða hann áfram og vonandi verður hann betri. Á sunnudag getum við vonandi komið með jákvæðar fregnir. Við vonum að allt gangi vel og hann verður klár sem fyrst. Við erum að vonast eftir því að hann verði klár gegn Man City en við verðum samt að vera varkárir," sagði Mauricio Pochettino, þjálfari PSG.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner