Notts County leikur í ensku utandeildinni og lagði York City að velli í dag.
Quevin Castro, nýr leikmaður liðsins, skoraði stórbrotið mark beint úr aukaspyrnu af löngu færi í sigrinum.
Markið er hægt að sjá hér fyrir neðan og ekki margir markverðir í hæsta gæðaflokki sem hefðu getað varið þennan bolta.
Castro er 21 árs gamall. Hann er hjá Notts á lánssamningi frá West Bromwich Albion sem leikur í Championship deildinni.
Goal of the season wrapped up? 🎯 pic.twitter.com/NS4uHqqgMv
— Notts County FC (@Official_NCFC) September 24, 2022
Athugasemdir