Fotbolti.net
24.10.26 - 22:04
Ívan Guðjón Baldursson

De Zerbi: Munum ná langt ef við spilum svona

De Zerbi: Munum ná langt ef við spilum svona
Canon

Mynd: EPA

Roberto De Zerbi var létt eftir að Tottenham vann annan úrvalsdeildarleik sinn í röð eftir hörmulega byrjun á deildartímabilinu.
England: Óvæntur sigur Tottenham á Brúnni
TENGT EFNI

England: Óvæntur sigur Tottenham á Brúnni

Tottenham heimsótti meiðslahrjáð lið Chelsea og var sterkari aðilinn á Stamford Bridge. Mörkin létu ekki sjá sig fyrr en á lokakaflanum og urðu lokatölur 0-2. Tottenham er með 9 stig eftir 8 fyrstu umferðirnar.

„Strákarnir spiluðu mjög vel og verðskulduðu þennan sigur. Ég hef aldrei efast um gæði leikmanna, það sem við höfum verið að vinna í er hugarfarið og andlega hliðin. Núna verðum við að byggja á þessu," sagði De Zerbi eftir leik.

„Við sýndum mikla baráttu og við þurfum að gera það í hverjum einasta leik. Gæði ein og sér eru ekki nóg til að vinna fótboltaleiki. Hver einasti fótboltaleikur er slagur, þetta er keppni. Maður verður að hlaupa og maður verður að berjast. Maður verður að vera fyrstur í seinni boltana og maður verður að vinna einvígin sín og í dag gerðum við það."

De Zerbi hrósaði sóknartengiliðnum James Maddison að leikslokum og ræddi um Mathys Tel sem lék allan leikinn og innsiglaði sigurinn. Maddison var í byrjunarliðinu en fór meiddur af velli í upphafi síðari hálfleiks.

„Þetta leit ekki út fyrir að vera alvarlegt en við verðum að bíða og sjá. James er öðruvísi leikmaður, hann skilur fótbolta á hærra stigi en flestir aðrir. Þegar hann er við góða heilsu þá er hann ómissandi partur af þessu liði. Mathys þarf að fá meiri spiltíma til að öðlast meiri skilning á fótbolta og verða að yfirvegaðari leikmanni, en hann býr yfir svakalegum gæðum.

„Þessi sigur er mjög mikilvægur fyrir sjálfstraust leikmanna. Þetta er besta frammistaða Tottenham undir minni stjórn og við munum ná langt ef við höldum áfram að spila eins og við gerðum í dag. Við höfðum áður sýnt góða kafla á tímabilinu en þetta er í fyrsta sinn sem við spilum svona vel frá upphafsflautinu til lokaflautsins.

„Ég hef mikla trú á þessum leikmannahópi og ég veit að við getum afrekað mjög mikilvæga hluti saman. Andrúmsloftið er frábært."
De Zerbi: Munum ná langt ef við spilum svona
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.