Fotbolti.net
24.11.18 - 22:32
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Leik River Plate og Boca Juniors frestað (Staðfest)

Leiknum hefur verið frestað.

Leiknum hefur verið frestað.

Canon

Mynd: Getty Images

Það er búið að fresta leik Boca Juniors og River Plate sem átti að fara fram í kvöld vegna hegðunnar stuðningsmanna River Plate.
Leiknum var seinkað eftir að rúta Boca Juniors var grýtt. Var táragasi kastað inn í rútuna.

Leikmenn Boca komust til búningsklefa en standið á þeim var ekki gott og voru nokkrir þeirra sem ældu. Margir af leikmönnum liðsins þurftu að sækja sér læknisaðstoðar eftir þennan leiðinlega atburð.

Í kjölfarið brutust út slagsmál á milli stuðningsmanna River Plate og lögreglumanna fyrir utan leikvanginn.

Nú hefur verið ákveðið að fresta leiknum til morguns. Hann á að hefjast klukkan 20:00 að íslenskum tíma, annað kvöld.

Ákvörðun var tekin um þetta þrátt fyrir það sem Gianni Infantino, forseti Alþjóðaknattspyrnusambandsins, á að hafa sagt fyrr í kvöld. Hann á að hafa greint forseta Boca frá því að ef Boca spilaði ekki, þá verði River dæmdur sigur.

Leikurinn í kvöld átti að vera seinni leikur liðanna í úrslitaeinvíginu í Copa Libertadores eða Meistaradeild Suður-Ameríku.

Þetta er í fyrsta sinn þar sem þessir miklu erkifjendur mætast á þessu stigi keppninnar. Fyrri leikurinn endaði 2-2.


Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.