Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   sun 24. nóvember 2019 14:11
Brynjar Ingi Erluson
Ítalía: Dzemaili var bjargvættur Bologna
Blerim Dzemaili skoraði jöfnunarmarkið gegn Parma
Blerim Dzemaili skoraði jöfnunarmarkið gegn Parma
Mynd: Getty Images
Bologna 2 - 2 Parma
0-1 Dejan Kulusevski ('17 )
1-1 Rodrigo Palacio ('40 )
1-2 Simone Iacoponi ('71 )
2-2 Blerim Dzemaili ('90 )

Bologna og Parma gerðu 2-2 jafntefli í Seríu A á Ítalíu í dag en heimamenn jöfnuðu metin með marki í uppbótartíma síðari hálfleiks.

Gestirnir í Parma byrjuðu leikinn af krafti og komust yfir á 17. mínútu með marki frá Dejan Kulusevski áður en hinn þaulreyndi framherji Rodrigo Palacio jafnaði metin undir lok fyrri hálfleiks.

Simone Jacoponi kom Parma aftur yfir á 71. mínútu en ungverski miðjumaðurinn Blerim Dzemaili sá til þess að Bologna færi ekki tómhent heim með því að jafna undir lok leiksins.

Bologna er í 15. sæti með 13 stig en Parma í 8. sæti með 18 stig.
Athugasemdir
banner
banner