Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 24. nóvember 2019 22:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Sjáðu markið: Árni skoraði í fyrsta leiknum
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Árni Vilhjálmsson opnaði markareikning sinn með Kolos Kovalivka á þessum sunnudegi.

Hann samdi við úkraínska félagið Kolos Kovalivka á dögunum eftir að hafa verið án félags undanfarnar vikur.

Um er að ræða sögulegan samning fyrir Kolos Kovalivka en Árni er fyrsti erlendi leikmaðurinn sem gengur í raðir félagsins í sögu þess. Félagið var stofnað 2012

Árni fór beint inn í byrjunarliðið og hann þakkaði traustið með því að skora 2-0 sigri á Desna.

Árni kann mjög vel við sig í Úkraínu en hann var á láni hjá Chornomorets frá pólska liðinu Termica á síðustu leiktíð. Árni skoraði 7 deildarmörk fyrir Chornomorets sem féll úr deildinni en liðið mætti einmitt Kolos í umspilinu.

Hér að neðan má sjá mark Árna frá því í dag. Íslendingavaktin birti markið á Twitter.


Athugasemdir
banner
banner