lau 25. janúar 2020 22:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Bruce eftir jafntefli við Oxford: Pirrandi og lélegt
Mynd: Getty Images
„Þetta er pirrandi og mikil vonbrigði," sagði Steve Bruce, stjóri Newcastle, eftir 0-0 jafntefli við Oxford á heimavelli í bikarnum í dag.

„Við gerðum ekki nóg og það verður að gefa leikmönnum Oxford það að þeir gerðu okkur erfitt fyrir. Við erum ennþá í keppninni og við reynum að gera betur á heimavelli þeirra."

„Þetta eru vonbrigði fyrir þau þúsundir stuðningsmanna sem mættu í dag. Þetta var léleg frammistaða frá öllum hliðum."

„Þetta er eins og það er. Við getum ekki breytt liðinu mikið vegna meiðsla. Við vitum að við höfum átt erfitt uppdráttar þegar kemur að meiðslum,"
sagði Bruce að lokum.
Athugasemdir
banner
banner