Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 25. janúar 2021 07:12
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Fernandez til Sociedad (Staðfest) - Ekki nógu góður fyrir Lopetegui
Carlos Fernandez fremstur að fagna marki með Granada á síðasta tímabili
Carlos Fernandez fremstur að fagna marki með Granada á síðasta tímabili
Mynd: Getty Images
Real Sociedad hefur keypt sóknarmanninn Carlos Fernandez á um tólf milljónir evra frá Sevilla.

Carlos tók þátt í einungis sjö leikjum með Sevilla fyrri hluta tímabilsins en hann er 24 ára gamall og uppalinn hjá félaginu. Fernandez var ekki í áætlunum Julen Lopegui, stjóra Sevilla.

Hann stóð sig vel að láni hjá Granada á síðustu leiktíð og skoraði tíu mörk í 34 leikjum þegar Granada náði Evrópusæti.

Sociedad lánaði Brasilíumannin Willian Jose á dögunum til Úlfanna og er líklega litið á Fernandez sem mann í stað Jose.
Athugasemdir
banner
banner