Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mán 25. janúar 2021 17:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Hrósar Selfossi fyrir skilaboð til ungra iðkenda
Mynd: Sunnlenska.is - Guðmundur Karl
Magnús Guðmundsson, eða Maggi Peran eins og hann kallar sig, birti skemmtileg tíst um helgina þar sem hann hrósar knattspyrnudeild Selfoss fyrir jákvæð skilaboð til ungra iðkenda.

Hann birtir þar skilaboð frá þjálfurum innan knattspyrnudeildar þar sem iðkendur eru hvattir til að undirbúa sig vel.

„Minn 11 ára pjakkur hefur tekið þessu mjög alvarlega sem hann gerir alls ekki þegar við foreldrarnir tuðum. Elska að sjá svona gullmola sem hafa dýrmætt lærdómsgildi fyrir lífið," skrifar Maggi.

„Andlegi og líkamlegi þátturinn. 'Spot on Selfoss'."

Hér að neðan má sjá skilaboðin sem ungir fótboltamenn í Selfoss fengu frá þjálfurum sínum. Mikilvæg skilaboð til þess að ná góðum árangri; ekki bara í fótbolta, heldur í lífinu öllu.


Athugasemdir
banner