Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
   þri 25. janúar 2022 06:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Boga á láni til Atalanta - Keyptur í sumar
Mynd: Getty Images
Jeremie Boga er genginn til liðs við Atalanta frá Sassuolo. Hann mun vera á láni út tímabilið en Atalanta gengur frá kaupunum í sumar.

Hann mun kosta liðið 18 milljónir evra. Boga er 25 ára gamall miðjumaður en hann spilaði 103 leiki fyrir Sassuolo og skoraði fjögur mörk. Hann gekk til liðs við félagið árið 2018 frá Chelsea.

Boga er fæddur í Frakklandi og lék með unglingalandsliðum Frakka. Hann hefur hinsvegar spilað 7 A-landsleiki fyrir Fílabeinsströndina.

„Ég er mjög ánægður núna og líka fjölskyldan mín þar sem okkur hefur lengi langað til að koma hingað. Við erum ánægð að þetta sé gengið í gegn," sagði Boga við undirskriftina.
Athugasemdir
banner
banner
banner