banner
   þri 25. janúar 2022 06:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Howe fær aðstoð frá frænda sínum
Mynd: EPA
Eddie Howe hefur hringt í frænda sinn og fengið hann til að aðstoða sig á bakvið tjöldin hjá Newcastle.

Andy Howe er kominn í teymið hjá liðinu en hann er njósnari. Eddie og Andy eru frændur en þeir hafa unnið mikið saman. Þeir unnu bæði saman hjá Burnley og Bournemouth.

Andy vann síðast hjá Bournemouth en hann kvaddi félagið á Instagram um helgina eftir 10 ár í starfi.

„Eftir frábær 10 ár hjá Bournemouth hef ég ákveðið að það sé kominn tími á nýja áskorun. Ég vil þakka öllum hjá félaginu í gegnum tíðina. Þá vil ég óska félaginu góðs gengis í framtíðinni," skrifaði Andy á Instagram.

Newcastle er enn í leit að yfirmanni fótboltamála en þau mál munu skýrast á næstu vikum.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner