Það fer einn leikur fram í dag á Íslandi en það er leikur KA 4 og Hamrana í B-deild Kjarnafæðimótsins.
Hamrarnir hafa unnið báða leikina sína til þessa en KA 4 hefur gert eitt jafntefli og tapað tveimur.
Lið Hamrana er mun reynslumeira en lið KA 4 þar sem leikmenn á borð við Ármann Pétur Ævarsson, Kristinn Þór Rósbergsson, Pétur Heiðar Kristjánsson og Fannar Hafsteinsson er að finna svo einhverjir séu nefndir.
Í liði KA 4 eru leikmenn fæddir 2004-2005.
þriðjudagur 25. janúar
Kjarnafæðismótið - B-deild, riðill 1
20:00 KA 4-Hamrarnir (KA-völlur)
Athugasemdir