banner
   þri 25. febrúar 2020 11:30
Magnús Már Einarsson
Lampard óhræddur fyrir leikina við Bayern
Mynd: Getty Images
Frank Lampard, stjóri Chelsea, segist ekki vera í vafa um að liðið geti slegið Bayern Munchen út í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar. Fyrri leikur liðanna er á Stamford Bridge klukkan 20:00 í kvöld.

Chelsea hefur ekki farið í 8-liða úrslit Meistaradeildarinnar síðan árið 2014 en liðið hefur dottið þrisvar út í 16-liða úrslitum síðan þá.

„Ég treysti öllum leikmönnum sem hafa verið í hópnum á þessu ári. Þeir hafa öðlast traustið og þess vegna hafa þeir spilað," sagði Lampard á fréttamannafundi í gær.

„Stór hluti af vinnu minni á morgun (í dag) er að útskýra fyrir leikmönnum að við þurfum að vera upp á okkar besta í þessum tveimur leikjum. Við þurfum að hugsa um öll atriði og tikka í öll box í báðum leikjum."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner