Jimenez var maður leiksins síðasta sumar þegar Mexíkó vann Gullbikarinn, skoraði fyrra mark Mexíkóa í úrsltialeik gegn Bandaríkjunum.
Raul Jimenez, leikmaður Fulham, er einn þekktasti landsliðsmaður Mexíkó í dag. Hann er þó ekki með hópnum sem mætir Íslandi í kvöld því ekki er um alþjóðlegan landsleikjaglugga að ræða og Jimenez er á Englandi með félagsliði sínu.
Jimenez er 34 ára framherji sem hefur skorað 44 mörk í 121 landsleikjum. Hann er þriðji markahæsti leikmaður í sögu landsliðsins. Javier Chicharito Hernandez er markahæstur með 52 mörk.
Jimenez hefur verið í ensku úrvalsdeildinni frá 2018, fyrst var hann hjá Wolves en fór svo til Fulham sumarið 2023. Hann er kominn með 67 úrvalsdeildarmörk. Hann missti hins vegar af tæpu ári (2020-21) eftir að hafa orðið fyrir lífshættulegum höfuðmeiðslum. Hann höfuðkúpubrotnaði og sagði sjálfur í viðtali að það hefði tekið hann enn lengri tíma að ná sér að fullu.
Landsliðsþjálfarinn Arnar Gunnlaugsson lék á sínum tíma í ensku úrvalsdeildinni með Bolton og Leicester. Hann var til viðtals á mexíkóskum fjölmiðli í gær og var spurður út í Jimenez.

„Hann er frábær, hann er ekki bara mikill leiðtogi og frábær leikmaður, ég man þegar hann höfuðkúpubrotnaði, það þarf sterkan mann til að koma til baka úr svoleiðis meiðslum. Ég hef ekkert nema virðingu fyrir honum," sagði Arnar.
Ísland mætir Mexíkó í vináttuleik seint í kvöld. Leikurinn hefst 02:00 aðfaranótt fimmtudags og verður í beinni textalýsingu hér á Fótbolti.net.
Athugasemdir