Frammistaða Martin Ödegaard með Vitesse í hollensku úrvalsdeildinni á tímabilinu hefur vakið mikla athygli. Hann er þar í láni hjá Real Madrid.
Sjá einnig:
Myndband: Ödegaard fór mjög illa með liðsfélaga Alberts
Sjá einnig:
Myndband: Ödegaard fór mjög illa með liðsfélaga Alberts
Það verður fróðlegt að sjá hvað gerist hjá Ödegaard í sumar. Hann er sagður á óskalista Ajax og sérstaklega ef Hakim Ziyech fer frá félaginu.
Í frétt hjá Telegraaf í Hollandi segir að Ödegaard sé fáanlegur fyrir Ajax í sumar fyrir tæpar 20 milljónir punda.
Spænska blaðið Marca segir hins vegar að Norðmaðurinn sé ekki til sölu. Í greininni segir að Ödegaard gæti farið aftur á láni, en Real sé ekki tilbúið að selja hann.
Ödegaard fór til Real Madrid 2015 frá Strømsgodset í Noregi. Hann á aðeins tvo leiki að baki fyrir aðallið Madrídarstórveldisins.
Athugasemdir