Fótboltinn fór aftur af rúlla af stað á Íslandi í kvöld eftir langt hlé. Leiknir R. lagði Kórdrengi 2-1 á Leiknisvelli. Hjalti Sigurðsson skoraði sigurmarkið með þrumuskoti en hann kom aftur til Leiknis í gær á láni frá KR.
Þróttur R. og Þróttur V. gerðu 2-2 jafntefli á Eimskipsvellinum í Laugardal þar sem heimamenn leiddu 1-0 í hálfleik.
Höttur/Huginn úr 3. deild lagði Fjarðabyggð úr 2. deild 2-0 á Norðfjarðarvelli.
Vængir Júpíters unnu síðan Álftanes 2-0 á útivelli í uppgjöri tveggja liða úr 3. deild.

Leiknir R. 2 - 1 Kórdrengir
1-0 Árni Elvar Árnason
1-1 Albert Brynjar Ingason
2-1 Hjalti Sigurðsson
Þróttur R. 2 - 2 Þróttur V.
1-0 Oliver Heidarsson
1-1 Viktor Smári Segatta
1-2 Sigurður Gísli Snorrason
2-2 Hafþór Pétursson
Fjarðabyggð 0 - 2 Höttur/Huginn
0-1 Brynjar Árnason
0-2 Steinar Aron Magnússon
Álftanes 0- 2 Vængir Júpíters
0-1 Gunnar Orri Guðmundsson
0-2 Andi Andri Morina
Veistu úrslit úr æfingaleikjum?
Ef þú hefur upplýsingar um úrslit æfingaleikja og markaskorara endilega sendu okkur þá tölvupóst á [email protected] eða settu úrslitin á Twitter og merktu #fotboltinet
Athugasemdir