Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 25. maí 2020 23:00
Brynjar Ingi Erluson
Haaland spenntur fyrir leiknum gegn Bayern
Erling Braut Haaland ásamt Jadon Sancho
Erling Braut Haaland ásamt Jadon Sancho
Mynd: Getty Images
Erling Braut Haaland, framherji Borussia Dortmund, er spenntur fyrir stórslagnum gegn Bayern München á morgun en liðin eru í harðri baráttu um titilinn.

Eins og staðan er í dag er Bayern í toppsætinu með 61 stig, fjórum stigum á undan Dortmund. Ljóst er að þessi leikur er afar mikilvægur fyrir bæði lið.

„Pressan truflar mig ekkert. Ég elska að spila þessa leiki og ég hef mest gaman af þessum leikjum ef ég á að vera hreinskilinn," sagði Haaland á Youtube-rás Dortmund.

„Ég get ekki beðið eftir því að mæta þessu öfluga Bayern-liðið og ég reyni að halda ró minni og hugsa ekki of mikið út í þennan leik. Þeir eru með heimsmeistara í sínum röðum en það er nú líka þannig hjá okkur."

„Ég veit að við erum með gott lið en Bayern er einnig með gott lið svo þetta verður athyglisverður leikur. Ég sé liðsfélagana á hverjum degi á æfingu og sé hversu góðir þeir eru og það snýst bara um að fara í leikinn sem lið og ná markmiðum okkar,"
sagði hann ennfremur.
Athugasemdir
banner
banner