Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 25. maí 2022 19:30
Brynjar Ingi Erluson
Nketiah snýst hugur - Ætlar að framlengja við Arsenal
Eddie Nketiah verður áfram í herbúðum Arsenal
Eddie Nketiah verður áfram í herbúðum Arsenal
Mynd: EPA
Enski framherjinn Eddie Nketiah er við það að gera nýjan fimm ára samning við Arsenal en þetta kemur fram í grein Athletic í dag.

Samningur Nketiah við Arsenal rennur út eftir mánuð en hann hafði ekki í hug að framlengja samninginn.

Þessi 22 ára gamli framherji hefur verið á mála hjá Arsenal í sjö ár og var útlit fyrir að hann myndi yfirgefa félagið í sumar. Crystal Palace var talinn vera líklegasti áfangastaðurinn en nú er staðan önnur.

Athletic greinir nú frá því að hann ætli sér að vera áfram í herbúðum Arsenal og sé nálægt því að skrifa undir nýjan fimm ára samning.

Nketiah braut sér leið inn í byrjunarliðið undir lok tímabils og skoraði fimm mörk í síðustu sjö úrvalsdeildarleikjum liðsins.

Hann hefur skorað 23 mörk í 92 leikjum með félaginu á ferlinum en tíu af þessum mörkum komu á þessu tímabili.
Athugasemdir
banner
banner