Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 25. maí 2022 15:20
Elvar Geir Magnússon
Zlatan frá í átta mánuði eftir að hafa gengist undir aðgerð
Mynd: EPA
Zlatan Ibrahimovic verður frá í allt að átta mánuði eftir að hafa gengist undir hnéaðgerð.

Sænski landsliðsmaðurinn er orðinn 40 ára en hann hjálpaði Milan að vinna fyrsta Ítalíumeistaratitil sinn síðan 2011. Hann var þó talsvert á meiðslalistanum á tímabilinu.

Hann byrjaði aðeins ellefu deildarleiki á tímabilinu en skoraði átta mörk þegar AC Milan vann samkeppnina við hans fyrrum félag og erkifjendurna í Inter.

Zlatan verður samningslaus í sumar og hefur lýst yfir vilja til að vera að minnsta kosti eitt tímabil til viðbótar með Milan. En þessi meiðsli hans varpa óvissu á framtíðina.
Athugasemdir
banner
banner