Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 25. júní 2020 11:00
Magnús Már Einarsson
Pedro til Roma (Staðfest)
Mynd: Getty Images
Pedro, kantmaður Chelsea, hefur gengið frá samningi við ítalska félagið Roma.

Pedro mun ganga í raðir Roma eftir tímabilið í ensku úrvalsdeildinni en þá rennur samningur hans við Chelsea út.

Hinn 32 ára gamli Pedro kom til Chelsea frá Barcelona árið 2015 eftir að hafa raðað inn titlum með spænska félaginu.

Á þessu tímabili hefur Pedro ekki átt fast sæti í byrjunarliði Chelsea og hann mun nú yfirgefa félagið þegar samningur hans rennur út.

Pedro hefur á ferli sínum skorað sautján mörk í 65 leikjum með spænska landsliðinu.
Athugasemdir
banner
banner