Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mán 25. júlí 2022 18:38
Ívan Guðjón Baldursson
Parrott til Preston (Staðfest) - Framlengir við Tottenham
Mynd: Getty Images

Preston North End er búið að tryggja sér írska landsliðsmanninn Troy Parrott á lánssamningi frá Tottenham sem gildir út leiktíðina.


Parrott er tvítugur sóknarmaður sem þykir mikið efni. Hann skrifaði undir nýjan þriggja ára samning við Tottenham þegar hann samþykkti að fara til Preston á láni.

Parrott skoraði 10 mörk í 47 leikjum að láni hjá MK Dons á síðustu leiktíð. Nú færir hann sig upp um deild og verður áhugavert að fylgjast með gengi Parrott í Championship.

Parrott hefur skorað 4 mörk í 15 landsleikjum fyrir Írland.


Athugasemdir
banner
banner