Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   mán 25. júlí 2022 20:20
Ívan Guðjón Baldursson
Rangers borgar 5 milljónir fyrir Yilmaz (Staðfest)
Mynd: EPA

Ridvan Yilmaz er sjöundi leikmaðurinn sem Rangers fær til sín í sumar.


Skoska stórveldið borgar 5 milljónir punda fyrir Yilmaz sem er tyrkneskur vinstri bakvörður.

Yilmaz er 21 árs gamall og á sex landsleiki að baki fyrir Tyrkland. Hann var lykilmaður í liði Besiktas á síðustu leiktíð og er fenginn til Skotlands til að fylla í skarðið sem Calvin Bassey skilur eftir sig með félagsskiptunum til Ajax.

Rangers vann kapphlaup við nokkur önnur félög um bakvörðinn sem hefur miklar mætur á Giovanni van Bronckhorst og er spenntur fyrir áformum hans hjá Rangers.

John Souttar, Antonio Colak, Rabbi Matondo, Malik Tillman, Tom Lawrence og Ben Davies eru þegar komnir til Rangers í sumar auk Yilmaz.


Athugasemdir
banner
banner