Kovac orðaður við stjórastól Liverpool - Newcastle vill Gibbs-White - Dewsbury-Hall orðaður við Tottenham
banner
   mán 25. júlí 2022 18:16
Ívan Guðjón Baldursson
Sekou Mara nýr leikmaður Southampton (Staðfest)
Mynd: Getty Images

Southampton er búið að staðfesta félagsskipti Sekou Mara til félagsins fyrir um 11 milljónir punda. Ungstirnið skrifar undir fjögurra ára samning við félagið og segist vera gríðarlega spenntur fyrir að ganga í raðir Southampton, enda er félagið þekkt fyrir að gefa ungum leikmönnum tækifæri.


Mara er efnilegur sóknarmaður sem fagnar tvítugsafmæli um verslunarmannahelgina og hefur leikið fyrir Bordeaux frá fimmtán ára aldri.

Mara skoraði 6 mörk í 26 deildarleikjum á síðustu leiktíð og hefur skorað 6 mörk í 10 leikjum með U20 landsliði Frakklands.

Southampton er búið að næla sér í sex leikmenn í sumarglugganum fyrir rétt tæpar 50 milljónir punda.

Markverðirnir Mateusz Lis og Gavin Bazunu eru komnir til að fylla í skarðið sem Fraser Forster skilur eftir sig, varnarmaðurinn Armel Bella-Kotchap er einnig kominn ásamt miðjumönnunum Romeo Lavia og Joe Aribo. Félagið er aftur á móti ekki búið að missa neina aðra leikmenn að undanskildum Shane Long.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner