Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   sun 25. ágúst 2019 12:15
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Danny Simpson um Maddison: Gæti vel spilað fyrir United
Mynd: Getty Images
Manchester United er orðað við James Maddison, 22 ára miðjumann Leicester, í Slúðurpakka dagsins.

Maddison kom til Leicester fyrir síðustu leiktíð frá Norwich og átti gott fyrsta tímabil hjá Refunum.

Danny Simspon, sem lék með Leicester, allt þar til í sumar þegar samningur hans við liðið rann út(2014-2019), spilaði með Maddison í fyrra og tjáði sig um orðróminn um félagaskipti Maddison til United í morgun.

Simpson lék með United á sínum yngri árum(2005-2010) og spilaði þrjá deildarleiki fyrir Rauðu Djöflana.

„Ég get alveg séð hann fara til United. Fyrir mér er hann í heimsklassa. Hann á bara eftir að verða betri og betri."



Athugasemdir
banner
banner
banner
banner