Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   sun 25. ágúst 2019 11:45
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Neymar ekki í hóp hjá PSG - Pique spilar sinn 500. leik
Pique í upphitun fyrir leik Barcelona gegn Athletic.
Pique í upphitun fyrir leik Barcelona gegn Athletic.
Mynd: Getty Images
PSG tekur í kvöld á móti Toulouse í frönsku Ligue 1. PSG er með þrjú stig eftir tvær umferðir.

Neymar, Ander Herrera, Julian Draxler og Thilo Kehrer verða ekki með PSG í kvöld. Neymar er sagður á leið til Spánar en skammt er eftir af félagaskiptaglugganum, Real Madrid og Barcelona vilja fá Brasilíumanninn.

Meira af Barcelona
Barcelona byrjaði tímabilið á tapi gegn Athletic um síðustu helgi. Liðið var þar án Lionel Messi og verður það aftur í kvöld þegar liðið tekur á móti Real Betis.

Neto, Luis Suarez, Ousmane Dembele eru einnig fjarri góðu gamni.

Gerard Pique verður líklega í miðverðinum og mun spila sinn 500. leik fyrir Börsunga ef hann kemur við sögu.
Athugasemdir
banner
banner