Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   sun 25. ágúst 2019 17:13
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Spánn: Ödegaard tryggði Sociedad sigur á Mallorca
Ödegaard hetja Sociedad í dag.
Ödegaard hetja Sociedad í dag.
Mynd: Getty Images
Tveimur leikjum er lokið í spænsku La Liga í dag.

Alaves gerði 0-0 jafntefli við Espanyol í mjög tíðindalitlum leik. Aleix Vidal, fyrrum leikmaður Barcelona og núverandi leikmaður Alaves, var næst því að skora í leknum en skot hans fór rétt framhjá stönginni.

Á Mallorca kom sigurmark. Gestirnir frá Real Sociedad hirtu stiginn þrjú og kom markið skömmu fyrir leikslok. Hinn tvítugi Martin Ödegaard gerði sigurmarkið þegar tæpar tíu mínútur lifðu leiks. Portu átti sendingu á Ödegaard sem kláraði í netið og tryggði Sociedad sinn fyrsta sigur á leiktíðinni.


Sociedad er með fjögur stig ásamt Alaves, Mallorca er með þrjú og Espanyol er með eitt stig eftir tvær umferðir.

Í kvöld tekur Barcelona á móti Real Betis i lokaleik umferðarinnar.

Alaves 0 - 0 Espanyol

Mallorca 0 - 1 Real Sociedad
0-1 Martin Ödegaard ('83)
Athugasemdir
banner
banner