Fotbolti.net
25.08.21 - 15:35
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Telja aðra leikmenn betri til að sinna hlutverkinu

Arnór Ingvi Traustason.

Arnór Ingvi Traustason.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Icelandair
Arnór Ingvi Traustason hefur verið fastamaður í landsliðshópi Íslands undanfarin ár en er ekki í hópnum fyrir komandi leiki í undankeppni HM.

Ísland á heimaleiki gegn Norður-Makedóníu, Rúmeníu og Þýskalandi snemma í september.
Arnór Ingvi hefur verið að spila og standa sig vel með New England Revolution í MLS-deildinni en er ekki valinn að þessu sinni.

„Fyrir þetta verkefni töldum við aðra leikmenn betur til þess fallna að sinna því hlutverki sem Arnór Ingvi getur leyst og hefur leyst frábærlega fyrir landsliðið," sagði Arnar Þór Viðarsson, landsliðsþjálfari á blaðamannafundi.

„Arnór Ingvi er ekki sá eini sem er ekki valinn en hann er til dæmis einn af þeim leikmönnum sem er 100 prósent klár í slaginn en ekki valinn að þessu sinni."

„Eftir 3-4 vikur erum við að fara að velja annan hóp og það er ekkert sem segir að Arnór verði ekki valinn í þann hóp."

Hægt er að skoða landsliðshópinn hérna
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.