Malmö 3 - 1 Göteborg
1-0 Anders Christiansen ('3, víti)
1-1 Pontus Wernbloom ('23)
2-1 Ola Toivonen ('35)
3-1 A. Calisir ('64, sjálfsmark)
1-0 Anders Christiansen ('3, víti)
1-1 Pontus Wernbloom ('23)
2-1 Ola Toivonen ('35)
3-1 A. Calisir ('64, sjálfsmark)
Arnór Ingvi Traustason lék fyrstu 63 mínúturnar er Malmö vann gífurlega mikilvægan leik gegn Göteborg í sænska boltanum.
Arnór Ingvi fékk dæmda vítaspyrnu í upphafi leiks þegar hann var tæklaður innan vítateigs. Anders Christiansen steig á punktinn og skoraði örugglega.
Pontus Wernbloom jafnaði fyrir Gautaborg eftir skelfileg markmannsmistök Marko Johansson sem hefur eflaust verið himinlifandi þegar Ola Toivonen kom Malmö aftur yfir.
Malmö var betri aðilinn í leiknum og komst í 3-1 þegar Calisir, varnarmaður Göteborg, skallaði boltann óvart í eigið net. Meira var ekki skorað og góður 3-1 sigur niðurstaðan.
Malmö er komið með aðra hendi á titilinn þar sem liðið er með tíu stiga forystu á toppinum og með fimm leiki eftir. Næstu lið fyrir neðan eiga öll leik til góða.
Athugasemdir