Liverpool að blanda sér í baráttuna um Gyökeres - Chelsea nálgast kaup á Gittens - Newcastle vill styrkja sig
   fös 25. október 2024 08:45
Elvar Geir Magnússon
Sérstök en geggjuð stund fyrir Natöshu - „Æðislegt að ná að spila hérna“
Icelandair
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ísland tapaði 3-1 fyrir Bandaríkjunum, besta kvennaliði heims, í vináttulandsleik í nótt. Bandaríska liðið tryggði sér sigurinn með tveimur mörkum í lokin en íslenska liðið sýndi góða frammistöðu.

Natasha Anasi, varnarmaður Íslands, mun seint gleyma þessum leik. Hún fæddist í Texas þar sem leikurinn fór fram.

„Þetta var sérstök en geggjuð tilfinning. Það voru margir úr fjölskyldunni sem mættu á leikinn. Það var æðislegt að ná að spila hérna í Texas á móti Bandaríkjunum," sagði Natasha í viðtali við KSÍ eftir leikinn.

Natasha kom fyrst til Íslands þegar hún gekk í raðir ÍBV á 2014 tímabilinu. Hún hefur verið íslenskur ríkisborgari frá árinu 2019 og var þetta sjöundi landsleikur hennar.

Lestu um leikinn: Bandaríkin 3 -  1 Ísland

„Það er svekkjandi að hafa tapað þessum leik en það var fullt af góðum hlutum sem við gerðum. Það voru góðir kaflar. Úrslitin segja ekki alveg hvernig leikurinn var. Við vorum að spila gegn liði sem er Ólympíumeistari en við gáfum þeim rosa góðan leik," sagði Natasha, sem er leikmaður Vals.

Þetta var fyrri vináttulandsleikur þessara þjóða en þau mætast aftur á sunnudagskvöld, þá í Tennessee.





Athugasemdir
banner
banner