25.10.26 - 08:00
Ívan Guðjón Baldursson
Carrick trúir: Ég er 100% rétti maðurinn

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Michael Carrick þjálfari Manchester United fór víðan völl á fréttamannafundi fyrir leik helgarinnar gegn Bournemouth, sem fer fram á Old Trafford í dag.

TENGT EFNI
Carrick hélt tilfinningaþrungna ræðu í upphafi fundar
Hann hélt langa ræðu áður en hann svaraði spurningum fréttamanna og segist vera sannfærður um að vera rétti maðurinn til að snúa slæmu gengi við.
„Búningsklefinn er samheldinn og ég er 100% viss um að ég sé rétti maðurinn í starfið. Ég get snúið þessu við, það er 100%. Við munum finna aftur sama form og fyrstu fimm mánuðina mína við stjórnvölinn," sagði Carrick.
„Ég er í stöðugum viðræðum við stjórnina og ég átta mig á því að við þurfum að bregðast við með jákvæðum úrslitum í næstu leikjum. Ábyrgðin er mikil og ég held áfram á regnhlífinni þannig að ég blotna en allir aðrir halda sér þurrum.
„Við þurfum að halda áfram að leggja mikla vinnu á okkur og sýna hógværð. Við getum komist aftur á sama stað og við vorum á."
Carrick var svo spurður út í Bruno Fernandes sem lét umdeild ummæli falla eftir 4-1 tap gegn Como í miðri viku.
„Ég mun alltaf gera það sem er best fyrir félagið. Ég ætla ekki að tjá mig í fjölmiðlum um hvernig einstaka mál eru leyst innan herbúðanna. Staðreyndin er sú að félagið mun alltaf vera stærra en hvaða einstaklingur sem er.
„Sir Alex Ferguson er að mínu mati stærsti einstaklingur í sögu félagsins og hann setti Man Utd alltaf í forgang. Ekki sjálfan sig. Þrautseigjan sem Sir Matt Busby og félagar sýndu var ótrúleg. Ég mun ekki leyfa okkur að tapa þeirri þrautseigju."