25.10.26 - 08:30
Ívan Guðjón Baldursson
Heitt undir þjálfara Arsenal þrátt fyrir sigur

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Þjálfarastarf Renée Slegers við stjórnvölinn hjá stórveldi Arsenal er í hættu eftir hörmulega byrjun á nýju tímabili, en staða hennar skánaði örlítið með sigri í nágrannaslagnum gegn Tottenham í gær. Arsenal sýndi mikla yfirburði en lenti undir og vann að lokum 1-2 þökk sé sigurmarki úr vítaspyrnu.

TENGT EFNI
Yfirferðin með Elízu Gígju: Hörmuleg byrjun Arsenal heldur áfram
Slegers segist ekki vera að hugsa um umfjöllun fjölmiðla eða eigin framtíð, það eina sem hún hugsar um sé að ná í sigur í næsta leik.
Fyrir sigurinn gegn Tottenham hafði Arsenal ekki farið með sigur af hólmi í fjórum leikjum í röð. Liðið er aðeins komið með 9 stig eftir 7 umferðir í ensku ofurdeildinni og er einu stigi á eftir Tottenham.
„Mín framtíð er ekki mikilvæg, þetta snýst um stöðu okkar sem liðsheild og markmiðin sem við settum okkur. Þessi byrjun á tímabilinu eru mikil vonbrigði fyrir okkur allar og við erum einbeittar að næsta leik," segir Slegers, sem hefur verið í starfinu sem aðalþjálfari Arsenal í tvö ár eftir að hafa byrjað sem aðstoðarþjálfari félagsins.
„Það er mikill metnaður í hópnum og við erum einbeittar. Stuðningsmenn verðskulda að sjá meira frá okkur."
Slegers leiddi Arsenal til sögulegs sigurs gegn Barcelona í úrslitaleik Meistaradeildarinnar 2025, en félagið hefur ekki unnið ensku deildina síðan 2019.