Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   mið 25. nóvember 2020 09:21
Hafliði Breiðfjörð
Indriði í Fram - Þrír framlengja (Staðfest)
Hlynur Atli Magnússon fyrirliði Fram.
Hlynur Atli Magnússon fyrirliði Fram.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fram hefur fengið miðjumanninn Indriða Áka Þorláksson til liðs við sig frá Víkingi Ólafsvík.

Indriði er ekki ókunnugur Fram því hann lék með liðinu 2015 – 2017. Indriði hittir fyrir hjá Fram tvíburabróðir sinn Alexander en þeir bræður hafa aldrei leikið á sama tíma fyrir sama félag í meistaraflokki.

„Indriði kemur með mikla reynslu inn í hópinn þrátt fyrir ungan aldur og það er okkur mikil ánægja að fá Indriða til Fram og væntum við mikils af honum í bláa búningnum," segir á Facebook síðu Fram.

Þá hafa Framarar framlengt samninga við fyrirliðanna Hlyn Atla Magnússon, bandaríska varnarmanninn Kyle McLagan og jökul Stein Ólafsson.

„Hlynur er uppalinn Framari og hefur leikið 152 leiki fyrir Fram í deild og bikar. Hlynur hefur verið mikilvægur hlekkur í liðinu undanfarin ár og því afa mikilvægt að hann hafi skrifað undir tveggja ára framlengingu samnings," segir á Facebook síðu Fram.

„Jökull Steinn Ólafsson er uppalinn hjá Fram og lék sína fyrstu leiki í deild/bikar fyrir félagið 2018 og hefur síðan þá leikið 38 leiki fyrir Fram í deild og bikar. Jökull getur leyst nokkrar stöður á vellinum og hefur nú skrifað undir tveggja ára framlengingu á samningi sínum við Fram."

„Kyle McLagan kom til Fram á miðju síðasta tímabili og hefur nú gengið frá framlengingu á samningi sínum og verður því með okkur á komandi tímabili. Kyle kom til Fram frá Roskylde FC í Danmörku þar sem hann lék frá árinu 2018. Hann er miðvörður og styrkti varnarleik okkar mikið seinni part síðasta tímabils. Það er okkur mikil ánægja að Kyle skuli hafa ákveðið að leika áfram með Fram þrátt fyrir áhuga annara liða."


Fram var í 3. sæti í Lengjudeildinni þegar keppni var hætt vegna kórónuveirunnar en félagið hefur kært ákvörðun KSÍ til aga- og úrskurðarnefndar sambandsins.
Athugasemdir
banner
banner