Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mið 25. nóvember 2020 21:14
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Nýtt nafn á leikvangi Napoli: Diego Armando Maradona/San Paolo
Nýtt nafn verður: Diego Armando Maradona/San Paolo.
Nýtt nafn verður: Diego Armando Maradona/San Paolo.
Mynd: Getty Images
Ítalska úrvalsdeildarfélagið Napoli ætlar að breyta nafni leikvangar síns til heiðurs Diego Armando Maradona.

Þetta segir ítalski blaðamaðurinn Fabrizio Romano á Twitter í kvöld.

Maradona lést í dag, sextíu ára að aldri. Hann fékk hjartaáfall á heimili sínu. Maradona er einn besti fótboltamaður sem hefur spilað leikinn fallega. Hann er að margra mati sá allra besti. Hann hjálpaði Argentínu að vinna HM 1986, á móti þar sem hann sýndi sínar allra bestu hliðar.

Hann er einn besti leikmaður í sögu Napoli og líklega sá mikilvægasti. Hann hjálpaði liðinu að vinna sína einu úrvalsdeildartitla á Ítalíu 1987 og 1990. Þá fór hann fyrir liðinu í sigri í Evrópubikarnum 1989.

Það ríkir mikil sorg í ítölsku borginni Napoli en félagið ætlar að breyta nafninu á leikvangi sínum.

Nýtt nafn verður Diego Armando Maradona/San Paolo. Það er unnið að því núna að breyta nafninu.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner