Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mið 25. nóvember 2020 15:17
Magnús Már Einarsson
Valur vill stórar breytingar á Reykjavíkurmótinu
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Meistaraflokkur karla og kvenna hjá Val ætlar ekki að taka þátt í Reykjavíkurmótinu á næsta ári nema ÍBR geri stórar breytingar á mótinu.

Reykjavíkurmótið hefur farið fram í Egilshöll í janúar og febrúar undanfarin ár.

Valur vill sjá aðra leikvelli, betri umgjörð og utanumhald um mótið.

„Reykjavíkurmótið var sett á laggirnir 1915 og var á sínum tíma glæsilegt og mikilsvert mót en vegur þess hefur minnkað í gegnum tíðina og allur sjarmi, virðing og reisn farin. Þess má geta að meistaraflokkur Vals kvenna hefur oftast farið með sigur að hólmi í þessu móti og karlalið félagsins hefur hampað Reykjavíkurbikarnum 22 sinnum þannig að við þekkjum þetta mót nokkuð vel," segir Sigurður K. Pálsson, framkvæmdastjóri Vals.

„Valur skorar á ÍBR að stórbæta umgjörð, utanumhald, leikjadagskrá og bæta við verðlaunafé og hefja þetta fornfræga mót aftur til virðingar."

-Valur hefur farið fram á að leika sina leiki á sínum leikvelli eða sambærilegum gervigrasvöllum í borginni (ÍR, KR, Víkingur, Fylkir, Leiknir, Valur, Fjölnir, Fram, Þróttur hafa öll ágætis gervigrasvelli til umráða á sínum svæðum)
- Núverandi umgjörð er lítil sem engin
- Klefar og umhirða í kringum varamannaskýli ekki boðleg
- Leikdagar og leiktími seint á kvöldin
- Grasið / undirlagið ekki vökvað og slysahætta veruleg - ÍBR hefji mótið aftur til vegs og virðingar ella leggi það einfaldlega niður."

Athugasemdir
banner
banner