
Jón Óli Daníelsson, þjálfari ÍBV, ræddi við Fótbolta.net eftir 10-0 tapið gegn Blikum í dag en hann spjallaði einnig um framhaldið og standið á hópnum.
ÍBV hefur tapað öllum leikjum sínum í Faxaflóamótinu til þessa og tapaði þá með tíu mörkum í dag en það vantar þó enn fullt af leikmönnum í hópinn.
Mikið af ungum leikmönnum eru í hópnum eins og er en Jón Óli býst þó við því að hópurinn verði fullmannaður þegar Pepsi-deildin hefst.
„Þetta er svona árlegur viðburður að koma hérna í janúarmánuði að fá skell og svo höldum við bara áfram. Við munum reyndar bærilega snemma saman núna og það bætist við í næstu viku en við verðum að byrja á sama tíma og aðrir og púsla saman liðinu," sagði Jón Óli við Fótbolta.net.
„Þetta verður gríðarlega erfitt og halda áfram og reyna að vera tilbúnar þegar mótið byrjar en það er ljós að þetta verður erfitt. Ég man þetta ekki, það eru einhverjir farnir og einhverjir komnir."
„Við erum búin að fullmanna hópinn og það verða gríðarlega ungir leikmenn sem fá sénsinn og við viljum ekki fara að fylla liðið af aðkomufólki og við viljum hafa Vestmannaeyinga í liðinu og það þarf að finna jafnvægið þarna á milli og vonandi verður það í lagi þegar mótið byrjar."
„Ekkert að byggja liðið meira upp á Eyjamönnum heldur þeir leikmenn sem ráða við verkefnið fá að vera í því og svo fyllum við upp í þau göt sem vantar," sagði hann ennfremur.
Hægt er að sjá viðtalið í heild sinni hér fyrir ofan.
Athugasemdir