Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 26. janúar 2021 17:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Caity Heap í Selfoss (Staðfest)
Caity Heap leikur með Selfossi næsta sumar.
Caity Heap leikur með Selfossi næsta sumar.
Mynd: Sunnlenska.is - Guðmundur Karl
Knattspyrnudeild Selfoss hefur samið við bandaríska miðjumanninn Caity Heap um að leika með liðinu á komandi keppnistímabili.

Heap, sem er 26 ára gömul, er reynslumikill leikmaður. Hún var í sterku liði Texas Tech háskólans en eftir útskrift samdi hún við Houston Dash í bandarísku atvinnumannadeildinni og lék þar tímabilin 2016-2017.

Eftir það hélt hún til Evrópu og lék eitt tímabil með Mallbackens í sænsku 1. deildinni áður en hún gekk til liðs við tékknesku meistarana í Sparta Prag.

„Caity er mjög spennandi leikmaður með mikla reynslu frá bæði Bandaríkjunum og Evrópu. Þetta er vel spilandi miðjumaður, sem er jafnvíg á hægri og vinstri fót. Hún á klárlega að geta bætt spilið hjá okkur til mikilla muna. Það er mikil tilhlökkun hjá okkur hérna á Selfossi að fá hana til okkar,“ segir Alfreð Elías Jóhannsson, þjálfari Selfoss sem hafnaði í fjórða sæti Pepsi Max-deildarinnar á síðustu leiktíð.


Athugasemdir
banner
banner
banner