Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   þri 26. janúar 2021 17:44
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Morgan Sanson í Aston Villa (Staðfest)
Morgan Sanson.
Morgan Sanson.
Mynd: Getty Images
Aston Villa hefur keypt franska miðjumanninn Morgan Sanson frá Marseille.

Samkvæmt The Athletic er kaupverðið 14 milljónir punda og gæti það hækkað síðar meir í 15,5 milljónir punda.

Hinn 26 ára gamli Sanson er sóknarsinnaður miðjumaður og það verður gaman að sjá hvernig hann kemur inn í lið Aston Villa. Talið er að Villa sé mikið að hugsa um framtíðina með þessum kaupum og koma hans núna gefi honum tíma að aðlagast fyrir næstu leiktíð.

Hjá Marseille skoraði Sanson 22 mörk í 120 deildarleikjum og lék áður með bæði Le Mans og Montpellier.

Aston Villa er með 29 stig eftir 17 leiki í áttunda sæti ensku úrvalsdeildarinnar.
Athugasemdir
banner
banner