26.02.19 - 21:38
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
England: Gylfi með tvö þegar hann bætti met Eiðs

Gylfi fagnar seinna marki sínu í kvöld.

Mynd: Getty Images

Jamie Vardy.

Mynd: Getty Images

Gylfi fagnar seinna marki sínu í kvöld.

Mynd: Getty Images
Cardiff tók á móti Everton í Íslendingaslag í Úrvalsdeildinni í kvöld. Gylfi Þór Sigurðsson skoraði tvö mörk Everton, í 0-3 sigri. Gylfi varð þar með markahæsti íslenski leikmaður Úrvalsdeildarinnar frá upphafi.
Gylfi skoraði sitt 56. og 57. mark í Úrvalsdeildinni en hann og Eiður Smári voru fyrir leikinn í kvöld jafnir með 55 mörk.
Gylfi er einnig sá leikmaður sem hefur komið að flestum mörkum í Wales í sögu Úrvalsdeildarinnar. Hann hefur skorað fjórtán mörk og lagt upp 21 í leikjum sem hann hefur spilað í Wales í Úrvalsdeildinni. Calvert Lewin bætti við þriðja marki Everton í uppbótartíma
Everton skaust upp í 9. sæti deildarinnar með sigrinum. Cardiff er stigi fyrir ofan fallsæti, með 25 stig.
Á sama tíma fóru fram tveir aðrir leikir, Huddersfield tók á móti Wolves og Leicester fékk Brighton í heimsókn.
Mike Stowell stýrði Leicester í leiknum í kvöld en Brendan Rodgers, nýráðinn stjóri liðsins, stýrir liðinu í næsta leik.
Leicester komst í 2-0 með mörkum frá Demarai Gray og Jamie Vardy. Davy Propper minnkaði muninn fyrir Brighton á 66. mínútu.
Steve Mounie skoraði sigurmark Huddersfield í uppbótartíma gegn Wolves. Huddersfield er enn í botnsæti deildarinnar. Huddersfield er ellefu stigum frá öruggu sæti.
Cardiff 0 - 2 Everton
0-1 Gylfi Sigurðsson (´41)
0-2 Gylfi Sigurðsson (´66)
0-3 Calvert-Lewin (´90+3)
Leicester 2 - 1 Brighton
1-0 Gray (´10)
2-0 Vardy (´63)
2-1 Propper (´66)
Huddersfield 1 - 0 Wolves
1-0 Mounie ('90+2)

Sigurdsson heads over to the fantastic travelling support at the end of the game, and they love him! pic.twitter.com/H46YF1CQql
— Adam Jones (@Adam_Jones94) February 26, 2019

Jamie Vardy.

Mynd: Getty Images