26.02.19 - 22:23
Elvar Geir Magnússon
Gylfi besti maður vallarins - Slekkur í gagnrýnisröddum

Gylfi klappar til áhorfenda eftir leik í kvöld.

Mynd: Getty Images

Gylfi Þór Sigurðsson var maður leiksins þegar Everton vann 3-0 sigur gegn Cardiff City í ensku úrvalsdeildinni.
„Sigurðsson gerði frábærlega í báðum mörkum sínum og tryggði liðinu þrjú mikivæg stig. Hann er kominn með ellefu mörk í ensku úrvalsdeildinni á þessu tímabili. Efasemdarmenn hafa þagnað," segir í umfjöllun Liverpool Echo.
Þar fær Gylfi 8 í einkunn, Morgan Schneiderlin fær einnig 8 en aðrir minna. Þá var Gylfi valinn maður leiksins af Sky Sports og BBC.

Gylfi varð í kvöld markahæsti íslenski leikmaður ensku úrvalsdeildarinnar frá upphafi. Gylfi skoraði sitt 56. og 57. mark en hann og Eiður Smári voru fyrir leikinn í kvöld jafnir með 55 mörk.
Gylfi er einnig sá leikmaður sem hefur komið að flestum mörkum í Wales í sögu deildarinnar. Hann hefur skorað fjórtán mörk og lagt upp 21 í leikjum sem hann hefur spilað í Wales í deildinni.
Eftir leik var honum mikið fagnað af stuðningsmönnum Everton eins og sjá má í myndbandi í þessari frétt.