Fotbolti.net
26.02.19 - 11:30
Magnús Már Einarsson

Solskjær: Tækifæri fyrir Lukaku og Sanchez

Hvað gerir Lukaku annað kvöld?

Hvað gerir Lukaku annað kvöld?

Canon

Mynd: Getty Images

Ole Gunnar Solskjær, stjóri Manchester United, vonar að Romelu Lukaku og Alexis Sanchez nýti tækifærið gegn Crystal Palace annað kvöld.

Mikil meiðsli eru hjá Manchester United og allt að tíu leikmenn verða fjarri góðu gamni annað kvöld.
„Þetta er tækifæri fyrir þá til að sýna sitt besta," sagði Solskjær á fréttamannafundi í dag. „Þeir eru góður félagar og spila vel saman. Þetta gæti verið tækifæri fyrir þá til að komast í gang og láta mig fá hausverk þegar kemur að því að velja liðið þegar allir verða heilir."

Lukaku spilaði á kantinum gegn Liverpool á sunnudaginn. Þrír leikmenn Manchester United meiddust í fyrri hálfleik og þar sem skiptingarnar voru búnar þurfti meiddur Marcus Rashford að klára leikinn frammi.

„Rom skapaði okkar besta færi gegn Liverpool. Ég veit að þetta er öðruvísi staða fyrir hann en meiðsli Rashford urðu til þess að við þurftum að treysta á hann að standa frammi og hlaupa inn fyrir. Hann (Rashford) gat ekki varist of mikið. Hugarfar hans og vinnusemi var stórkostleg."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.