David Villa, fyrrum framherji spænska landsliðsins, segist hafa verið hársbreidd frá því að ganga til liðs við Arsenal árið 2013 áður en hann samdi við Atletico Madrid.
Hinn 38 ára gamli Villa lagði skóna á hilluna á dögunum
Hinn 38 ára gamli Villa lagði skóna á hilluna á dögunum
„Við fórum á marga fundi og tókum mörg símtöl," sagði Villa.
„Ég var 90% viss á því augnabliki að ég myndi fara til Arsenal og Arsene Wenger."
„Á endanum varð ekkert af samningum. Atletico Madrid mætti og við gengum frá öllu á þremur eða fjórum dögum."
Athugasemdir