Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   fös 26. febrúar 2021 06:00
Aksentije Milisic
James ánægður með komu Diallo - Vill hafa samkeppni
Mynd: Getty Images
Daniel James, leikmaður Manchester United, hefur verið að spila mjög vel upp á síðkastið en hann fékk fáar mínútur á vellinum í byrjun tímabils.

Hann hefur hins vegar verið að nýta tækifærin sem hann hefur fengið undanfarið og hefur hann skorað í þremur leikjum í röð. Hann er sáttur með að United hafi fengið Amad Diallo og lítur á það sem áskorun.

„Það er frábært þegar liðið kaupir nýja leikmann. Ég tek því sem áskorun. Það verður alltaf krefjandi að komast í liðið því það eru frábærir leikmenn í þeirri stöðu sem ég spila," sagði hinn snöggi James.

„Ég tek þessu ekki sem slæmum hlut. Ég er að hugsa um að gefa stjóranum hausverk að velja liðið. Hann vill það. Hann vill ekki að það sé auðvelt fyrir hann að velja byrjunarliðið."

James fór af velli fyrir Diallo í gær þegar United fór áfram í 16-liða úrslit Evrópudeildarinnar. Þetta var fyrsti leikur Diallo á Old Trafford.
Athugasemdir
banner
banner
banner