Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fim 26. mars 2020 07:38
Elvar Geir Magnússon
Bjarni Ben notaði Old Trafford sem bakgrunn
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra er mikill fótboltaáhugamaður og styður Manchester United í enska boltanum.

Hann var að funda með flokksfélögum sínum í Sjálfstæðisflokknum á símafundi í gegnum Zoom forritið í gær.

Í forritinu er hægt að breyta bakgrunninum og var Bjarni með Old Trafford, heimavöll Manchester United, í bakgrunninum hjá sér.

„Ég tók þingflokksfundinn frá Old Trafford í dag. Nota næst Samsungvöll Stjörnunnnar sem bakgrunn, á hann líka," segir Bjarni sem er mikill Stjörnumaður og lék með félaginu á sínum tíma.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner